Færsluflokkur: Bloggar

Rjúpnaveiði

Djöfull er dagurinn í dag og gær búnir að vera erfiðir... Í gær hefði rúpnaveiðin átt að hefjast en allt kom fyrir ekki...

Ég vaknaði í gær morgun og var að keyra í  skólann... Mér var mikið hugsað um hvaða dagur það væri og hvað það væri fallegt veður til að fara á fjöll.... svo lít ég upp til fjalla og viti menn.... það hafði bara snjóað líka hversu fúlt var það.

Ég ætla að reyna að fara alla 18 dagana sem MÁ veiða Rjúpu ef ég fer ekki sendi ég Kallinn...hehe

 

Mikið rosalega er ég fegin að við fjölskyldan fáum íbúðina okkar afhenta 1 desember þá getur maður bara slappað af í nóvember og labbað um fjöll og dali :)  svo verður Desember mánuður eins og geðveiki. Mála íbúðina, flytja, læra fyrir prófin og fara í þau, kaupa jólagjafir, pakka þeim inn, skrifa jólakortin og allt jóla stússið... svo kemur Aðfangadagur og þá slappar maður af og BORÐAR rjúpurnar sem hafa verið skotnar... ég fæ strax vatn í munnin... nammi namm

En það er nú svoldi snemmt að fara að spá í þessum jólum hehehe það er nú allt í lagi að klára bara oktober í rólegheitunum heheh

 

take care

Birnan 

 

 

 


Ný hérna

Jæja núna er maður bara mættur á blog.is. Hér kem ég til með að skrifa um það sem er að gerast í mínu lífi. Í augnablikinu er ég með annað blog líka. En ég hef hugsað mér að færa mig yfir á þetta blog. 

 Gamla blogið er www.123.is/birnan ef eitthver vill kíkja á það.

 Ég ætla að gefa mér smá tíma í að færa allt saman yfir á þessa síðu, vona að þið verðið ekki of óþolimóð. hehe

 

take care

Birnan 


Um bloggið

Minn Heimur

Höfundur

Birna Árnadóttir
Birna Árnadóttir
Ég heiti Birna og er 24 ára gömul. Ég á 5 ára gamlan strák og yndislegan kærasta. Ég er í förðunarnámi og er bara ósköp venjuleg ung kona
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband